Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 10. mars 2021 20:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Magnaður Messi - Stórkostlegt mark hjá honum
Mynd: Getty Images
Lionel Messi er alveg ótrúlegur fótboltamaður. Það er löngu, löngu vitað.

Hinn 32 ára gamli Messi var að skora rosalegt mark í Meistaradeildinni í kvöld fyrir Barcelona gegn Paris Saint-Germain. PSG tók forystuna í leiknum með marki Kylian Mbappe af vítapunktinum en Messi jafnaði með frábæru skoti.

Með því að smella hérna má sjá markið. Algjört skylduáhorf!

Messi fékk tækifæri til að koma Barcelona í 2-1 fyrir lok fyrri hálfleiks en hann klikkaði af vítapunktinum. Kaylor Navas varði frá argentíska snillingnum. Staðan er 5-2 í einvíginu og Barcelona þarf þrjú mörk hið minnsta í seinni hálfleiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner