Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. mars 2021 21:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeild kvenna: Glódís áfram en Kristrún situr eftir
Glódís í leik með Íslandi gegn Svíþjóð.
Glódís í leik með Íslandi gegn Svíþjóð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Glódís Perla Viggósdóttir spilaði allan leikinn þegar Rosengård tryggði sér farseðilinn í 8-liða úrslit Meistaradeildar kvenna.

Rosegård mætti St. Pölten frá Austurríki í Íslendingaslag. Kristrún Rut Antonsdóttir var allan tímann á bekknum hjá St. Pölten en hún kom við sögu í fyrri leiknum sem endaði 2-2.

Fyrri leikurinn í Svíþjóð var þannig að St. Pölten komst í 2-0 en Rosengård kom til baka og jafnaði metin.

Rosengård mætti til Austurríkis í kvöld og gerði nóg til að vinna leikinn. Þær skoruðu tvö mörk í fyrri hálfleiknum og náðu að landa sigrinum í seinni hálfleiknum.

Lokatölur 2-0 fyrir Rosengård sem er komið áfram í 8-liða úrslitin ásamt Chelsea, Lyon, Wolfsburg, Barcelona og Bayern München. Það eru tvær viðureignir eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner