Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 10. mars 2021 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Toppliðið með endurkomusigur
Suarez gerði sigurmark Atletico af vítapunktinum.
Suarez gerði sigurmark Atletico af vítapunktinum.
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid 2 - 1 Athletic
0-1 Iker Muniain ('21 )
1-1 Marcos Llorente ('45 )
2-1 Luis Suarez ('51 , víti)

Atletico Madrid, topplið spænsku úrvalsdeildarinnar, vann endurkomusigur á Athletic Bilbao í eina leik dagsins í La Liga.

Iker Muniain kom Bilbao yfir á 21. mínútu en Marcos Llorente, sem hefur átt mjög gott tímabil með Atletico, jafnaði metin áður en fyrri hálfleikurinn kláraðist.

Snemma í seinni hálfleiknum kom Luis Suarez Atletico yfir með marki úr vítaspyrnu.

Það reyndist sigurmarkið í leiknum og lokatölur 2-1 fyrir Atletico sem er með sex stiga forystu á Barcelona á toppi deildarinnar. Bilbao er í áttunda sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner