Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 10. apríl 2019 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Björgvin Halldórs, Frikki Dór og Heiðar Örn vinna að nýju FH-lagi
Friðrik Dór
Friðrik Dór
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Nokkrir landsfrægir tónlistarmenn og FH-ingar vinna nú að nýju FH-lagi sem að kemur út á næstu dögum.

Um er að ræða þá Friðrik Dór Jónsson, Björgvin Halldórsson og Heiðar Örn Kristjánsson. Þessa þrjá þarf valla að kynna fyrir lesendum en allir hafa þeir unnið mikið í tónlist.

„Flottir FH-ingar að taka upp nýtt FH lag sem kemur út á næstu dögum," var skrifað við mynd sem að birtist á Facebook-síðu FH þar sem að tríóið var statt í stúdíói að taka upp lagið.

Ekki kemur fram hvenær lagið á að koma út en það fer að styttast í fótboltasumarið, bæði hjá körlunum og konunum.

FH mætir HK í fyrstu umferð Pepsi Max-deildar karla þann 27. apríl í Kaplakrika.

Athugasemdir
banner
banner