Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 10. apríl 2019 17:30
Elvar Geir Magnússon
Fanndís Friðriksdóttir níunda í 100 landsleiki
Fanndís Friðriksdóttir.
Fanndís Friðriksdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Fanndís Friðriksdóttir varð níundi leikmaðurinn til að ná að spila 100 leik fyrir A landslið kvenna þegar hún var í byrjunarliði liðsins í seinni vináttulandsleiknum gegn Suður Kóreu.

Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli.

Fanndís Friðriksdóttir varð níundi leikmaðurinn til að ná að spila 100 leik fyrir A landslið kvenna þegar hún var í byrjunarliði liðsins í seinni leiknum gegn Suður Kóreu.

Fanndís fylgdi þar í fótspor liðsfélaga síns, en Hallbera Guðný Gísladóttir náði áfanganum á Algarve Cup í febrúar.

Þess má geta að Rakel Hönnudóttir er komin með 99 leiki og gæti því bæst í hópinn fljótlega.

Leikmenn með yfir 100 leik
Katrín Jónsdóttir - 133 leikir.
Sara Björk Gunnarsdóttir - 123 leikir.
Margrét Lára Viðarsdóttir - 119 leikir.
Dóra María Lárusdóttir - 114 leikir.
Hólmfríður Magnúsdóttir - 112 leikir.
Þóra B. Helgadóttir - 108 leikir.
Hallbera Guðný Gísladóttir - 104 leikir.
Edda Garðarsdóttir - 103 leikir.
Fanndís Friðriksdóttir - 100 leikir.
Athugasemdir
banner
banner