Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. apríl 2019 05:55
Arnar Helgi Magnússon
Ísland í dag - Mjólkurbikarinn hefst
Hvað gera Hvergerðingar á Akranesi?
Hvað gera Hvergerðingar á Akranesi?
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Mjólkurbikarinn hefst í kvöld með einum leik þegar Kári fær Hamar í heimsókn í Akraneshöllina.

Kári spilar í 2. deildinni í sumar á meðan Hvergerðingar eru í þeirri fjórðu. Þessi fyrsta umferð Mjólkurbikarsins verður síðan spiluð áfram næstu daga.

Leikurinn á Akranesi hefst klukkan 19:00 í kvöld.

Haukar og Augnablik mætast síðan í C-deild Lengjubikars kvenna í kvöld. Leikið verður á Ásvöllum. Um er að ræða síðasta leik beggja liða í riðlinum en Augnablik dugir jafntefli til að vinna riðilinn.

miðvikudagur 10. apríl

Mjólkurbikar karla
19:00 Kári - Hamar (Akraneshöllin)

Lengjubikar kvenna C-deild - Riðill 2
18:00 Haukar-Augnablik (Ásvellir)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner