Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Pele, var í síðustu vikur fluttur á sjúkrahús í París eftir að hafa veikst skyndilega um miðja nótt.
Pele fékk einhversskonar krampa og mjög háan hita. Hann var þó aldrei talinn í lífshættu.
Pele fékk einhversskonar krampa og mjög háan hita. Hann var þó aldrei talinn í lífshættu.
Samlandi Pele, Neymar, býr í París og spilar að sjálfsögðu með PSG. Neymar heimsótti Pele á sjúkrahúsið í gær þar sem að hann dvelur og að sögn franskra fjölmiðla var Pele sáttur með heimsóknina.
Mynd af þeim félögum má sjá hér að neðan.
Pele, sem er 78 ára var í frönsku höfuðborginni til að taka þátt í auglýsingaherferð fyrir úraframleiðanda ásamt Kylian Mbappe, stórstjörnu PSG.
Rei 👑 @Pele pic.twitter.com/lyTPFxc069
— Neymar Jr (@neymarjr) April 8, 2019
Athugasemdir