Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 10. apríl 2019 08:30
Arnar Helgi Magnússon
Ronaldo æfði í gær - Klár í kvöld?
Mynd: Getty Images
Lið Juventus er mætt til Hollands og mætir þar Ajax í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Næst besti leikmaður heims, á eftir Luka Modric, Cristiano Ronaldo, æfði í gær með Juventus og verður í leikmannahóp liðsins í kvöld. Massimiliano Allegri, stjóri liðsins, gaf það sterklega til kynna á blaðamannafundi fyrir leikinn að hann yrði klár.

Ronaldo hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur sem að hann varð fyrir í landsleikjahléinu í mars.

Síðan þá hefur hann ekkert spilað með Juventus í deildinni en liðið bindur væntnalega miklar vonir við það að hann verði klár í leik kvöldsins.

Giorgio Chiellini og Emre Can hafa einnig verið á meiðslalista Juventus og er óvissa með þáttöku þeirra beggja í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner