Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. apríl 2019 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Smalling skildi Messi blóðugan eftir
Mynd: Getty Images
Það er núna hálfleikur í leik Manchester United og Barcelona á Old Trafford.

Staðan er 1-0 fyrir gestina frá Barcelona. Luke Shaw skoraði sjálfsmark. Flaggað var á markið vegna rangstöðu en því var svo breytt eftir að það var skoðað var VAR.

Lionel Messi spilaði stóran þátt í markinu en þessi magnaði leikmaður lenti í smá óhappi í fyrri hálfleiknum.

Chris Smalling, varnarmaður Manchester United, kom af krafti inn í Messi og sló hann í andlitið. Óviljaverk, en það varð til þess að Messi lá blóðugur eftir.

Messi fékk aðhlynningu á vellinum og hélt svo leik áfram.

Hér að neðan má sjá hvernig Messi leit út eftir viðskipti sín við Smalling.





Athugasemdir
banner
banner