mið 10. apríl 2019 09:00
Arnar Helgi Magnússon
Son: Erum ekkert síðri en Man City
Mynd: Getty Images
Son Heung-min var hetja Tottenham þegar hann skoraði eina mark liðsins í 1-0 sigri á Manchester City. Um var að ræða fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Þeir eru með geggjað lið og þarna voru tvo mjög sterk lið að mætast. Manchester City er eitt besta lið í heiminum en við erum ekkert síðri heldur," sagði Son eftir leikinn.

„Þetta mark skiptir mig miklu máli, sérstaklega á þessum velli. Þetta er okkar annar leikur hér og mitt annað mark í röð . Við unnum og héldum hreinu, það er mikilvægast."

Sigurmark Son kom á 78. mínútu leiksins. Christian Eriksen átti stoðsendinguna.

„Fyrsta snertingin mín var ekki góð en ef að ég hefði náð henni betri þá hefði þetta væri verið auðveldara að klára," sagði Son að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner