Danski leikarinn Nikolaj Coster-Waldau var gestur í spjallþætti Jimmy Kimmel og þar var rætt um það hvernig síðasta þáttaröðin af Game of Thrones gæti endað.
Nokkrir dagar eru í að þáttaröðin hefjist og er gríðarleg spenna meðal fjölmargra aðdáenda um allan heim. Coster-Waldau leikur Jaime Lannister í þáttunum.
Hann er harður stuðningsmaður enska fótboltaliðsins Leeds United og ákvað að misnota aðstöðu sína í spjallþættinum og fá salinn til að segja 'In Bielsa we trust!'
Hann velti þeim möguleika fyrir sér að Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, gæti orðið óvænt hetja í Game of Thrones og bjargað norðrinu.
Þennan skemmtilega bút má sjá hér að neðan.

🙌 #InBielsaWeTrust!#LUFC fan @nikolajcw chats to @JimmyKimmelLive about possible #GameofThrones endings 🤣 pic.twitter.com/p3b71k5CxQ
— Leeds United (@LUFC) April 10, 2019
Athugasemdir