Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 10. apríl 2021 07:30
Victor Pálsson
Lampard reyndi að fá Rice til Chelsea
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frank Lampard reyndi að fá Declan Rice til Chelsea síðasta sumar áður en hann var svo síðar rekinn frá félaginu.

Lampard er mikill aðdáandi miðjumannsins sem er leikmaður West Ham sem og enska landsliðsins.

Chelsea reyndi að næla í leikmanninn áður en tímabilið hófst en það gekk ekki upp að lokum.

„Nú sjáiði hann í enska landsliðinu og það er erfitt að sjá enska liðið án Declan í því," sagði Lampard.

„Við erum heppnir að eiga hann. West Ham er heppið að eiga hann. Hann er leiðtogi og mun augljóslega afreka frábæra hluti."

„Ég held að allir viti hversu mikill aðdáandi ég er. Það voru nokkrar ástæður fyrir því að þetta gekk ekki upp. Við fengum inn marga leikmenn í sumar."

„Skiljanlega þá veit West Ham hvað þeir eru með í þessum leikmanni."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner