Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 10. maí 2020 17:44
Brynjar Ingi Erluson
„Ég væri til í að bera Ronaldinho til grafar"
Benjamin Aidoo og félagar hans eru heimsfrægir
Benjamin Aidoo og félagar hans eru heimsfrægir
Mynd: Af netinu
Ronaldinho
Ronaldinho
Mynd: Getty Images
Benjamin Aidoo og nokkrir góðvinir hans frá Gana hafa hlotið heimsfrægð í gegnum samfélagsmiðla er þeir sjást bera líkkistur fólks til grafar en hann ræðir við Footmercato um myndbandið og hvaða fótboltamann hann væri til í að bera til grafar.

Aidoo og félagar hans settu á laggirnar útfararfyrirtæki sem sérhæfir sig í að dansa með líkkistur fólks og þjóna gestum í útförum. Fyrirtækið var sett á laggirnar árið 2007 en það er nú orðið heimsfrægt eftir að myndband af gjörningnum birtist á samfélagsmiðlum.

Þar sjást þeir bera líkkistur og þá er lagið Astronomia undir í myndbandinu en það hefur verið notað við mörg tilefni upp á síðkastið.

Aidoo er mikill stuðningsmaður Barcelona og Chelsea og var hann spurður út í það hvaða fótboltamann hann væri til í að bera til grafar í framtíðinni og þar var Ronaldinho efstur á lista en Diego Maradona og Lionel Messi fylgja fast á eftir.

„Ég óska þeim auðvitað langlífis en ef ég fengi tækifærið þá er draumurinn að bera Ronaldinho til grafar. Maradona og Messi eru auðvitað á listanum líka en Ronaldinho er leikmaður sem hefur alltaf hrifið mig," sagði Aidoo við Footmercato.

„Dansinn minn væri tileinkaður honum því hann var mikill dansari á vellinum," sagði Aidoo.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið fræga.


Athugasemdir
banner
banner
banner