Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 10. maí 2020 21:46
Brynjar Ingi Erluson
Loftus-Cheek á leið til Lazio?
Ruben Loftus-Cheek meiddist illa á síðasta ári en hann gæti nú verið á leið til Ítalíu
Ruben Loftus-Cheek meiddist illa á síðasta ári en hann gæti nú verið á leið til Ítalíu
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Lazio er að íhuga tilboð í Ruben Loftus-Cheek, miðjumann Chelsea á Englandi. Þetta kemur fram í Il Messagero í dag.

Lazio er að vonast til þess að snúa aftur í Meistaradeild Evrópu eftir langa fjarveru og er því þörf á að styrkja hópinn.

Loftus-Cheek er á lista hjá liðinu en hann hefur verið frá vegna meiðsla síðasta árið og því ekki getað tekið þátt í uppbyggingar verkefni Frank Lampard.

Hann er 24 ára gamall og er að íhuga stöðu sína en talið er að Lazio þyrfti aðeins að reiða fram 17,5 milljón punda til að fá hann til Ítalíu.

Lazio er einnig að skoða Dominik Szboszlai, leikmann RB Salzburg, en hann hefur gert frábæra hluti með liðinu á tímabilinu og ljóst að stærstu félög Evrópu munu berjast um að fá hann í sumar.
Athugasemdir
banner
banner