Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 10. maí 2022 21:12
Brynjar Ingi Erluson
Araujo hneig niður eftir samstuð við Gavi
Ronald Araujo
Ronald Araujo
Mynd: EPA
Úrúgvæski varnarmaðurinn Ronald Araujo var fluttur í flýti á spítala eftir að hafa hnigið niður í leik Barcelona og Celta Vigo í spænsku deildinni í kvöld.

Araujo, sem framlengdi samning sinn við Börsunga á dögunum. lenti í hræðilegu samstuði við Gavi er hausar þeirra skullu saman á 61. mínútu.

Varnarmaðurinn var fljótur aftur á lappir en nokkrum sekúndum síðar hneig hann niður og leikurinn stöðvaður.

Sjúkraliðar mættu inn á völlinn og huguðu að honum áður en hann var fluttur með sjúkrabíl.

Gavi virðist hafa náð sér nokkuð fljótlega og gat haldið áfram að spila en Clement Lenglet kom inn í stað Araujo. Staðan í leiknum er 3-1 fyrir Barcelona.


Athugasemdir
banner
banner