Arsenal hefur fengið þau skilaboð frá umboðsmönnum belgíska miðjumannsins Youri Tielemans að liðið þurfi að ná Meistaradeildarsæti til að eiga möguleika á að fá hann.
Það verður væntanlega nóg að gera á skrifstofu Arsenal í sumar þar sem Mikel Arteta heldur áfram að endurbyggja liðið.
Það verður væntanlega nóg að gera á skrifstofu Arsenal í sumar þar sem Mikel Arteta heldur áfram að endurbyggja liðið.
Arsenal tryggir sér Meistaradeildarsæti ef liðið vinnur Tottenham á fimmtudaginn.
Samningur Tielemans við Leicester rennur út eftir eitt ár. Manchester United hefur einnig sýnt þessum 29 ára leikmanni áhuga en verður ekki í Meistaradeildinni á næsta tímabili og Voetbalkrant segir að United komi ekki lengur til greina hjá Tielemans.
Athugasemdir