Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 10. maí 2022 21:38
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Aston Villa og Liverpool: Mané bestur
Sadio Mané
Sadio Mané
Mynd: Getty Images
Sadio Mané reyndist hetja Liverpool er liðið lagði Aston Villa að velli, 2-1, á Villa Park í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Douglas Luiz kom Villa yfir á 3. mínútu áður en Joel Matip jafnaði nokkrum mínútum síðar.

Mané skoraði svo sigurmarkið um miðjan síðari hálfleikinn í miklum baráttuleik.

Hann var besti maður vallarins með 8 en liðsfélagar hans, Alisson og Kostas Tsimikas, fá báðir 5.

Aston Villa: Martinez (6), Cash (7), Konsa (6), Mings (6), Digne (6), Luiz (7), McGinn (6), Nakamba (6), Coutinho (7), Ings (5), Watkins (7).
Varamenn: Chukwuemeka (6), Buendia (6), Traore (6).

Liverpool: Alisson (5), Alexander-Arnold (6), Matip (6), Van Dijk (6), Tsimikas (5), Fabinho (6), Jones (6), Keita (6), Diaz (7), Jota (6), Mane (8).
Varamenn: Henderson (6), Thiago (6), Salah (6).
Athugasemdir
banner
banner