Í gær var greint frá því að sóknarmaðurinn Erling Haaland hefði staðist læknisskoðun hjá Manchester City. Haaland er á leið til City frá Borussia Dortmund í sumar en Englandsmeistararnir virkja 63 milljóna punda ákvæði í samningi hans.
Það kom ekki á óvart að fyrsta spurningin sem Pep Guardiola fékk á fréttamannafundi í dag var um Haaland.
„Allir vita hver staðan er. Ég ætti ekki að segja neitt því ég er ekki hrifinn af því að tala um framtíðina eða næsta tímabil," sagði Guardiola þegar hann var spurður að því hvort Haaland væri búinn í læknisskoðun.
„Dortmund og Man City sögðu mér að segja ekki neitt þar til allt er algjörlega klárt. Við tölum saman um þetta síðar."
Þrátt fyrir að vilja ekkert segja þá segir Guardiola í raun með þessum orðum að það sé staðfest að Erling Haaland sé á leiðinni. Allir viti hver staðan sé.
Hvað myndi 'nía' bæta við fyrir Manchester City?
„Við erum með níur, við erum með leikmenn í hópnum og stráka í akademíunni sem koma upp næsta tímabil. Við höfum alltaf skorað mikið og fengið fá á okkur. Félagið þarf alltaf að vera með sýn fyrir framtíðina. Ég er alltaf upplýstur um ákvarðanir félagsins og styð þær 100 prósent," segir Guardiola.
Manchester City er með þriggja stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni og heimsækir Wolves á morgun.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Arsenal | 28 | 20 | 4 | 4 | 70 | 24 | +46 | 64 |
2 | Liverpool | 28 | 19 | 7 | 2 | 65 | 26 | +39 | 64 |
3 | Man City | 28 | 19 | 6 | 3 | 63 | 28 | +35 | 63 |
4 | Aston Villa | 29 | 17 | 5 | 7 | 60 | 42 | +18 | 56 |
5 | Tottenham | 28 | 16 | 5 | 7 | 59 | 42 | +17 | 53 |
6 | Man Utd | 28 | 15 | 2 | 11 | 39 | 39 | 0 | 47 |
7 | West Ham | 29 | 12 | 8 | 9 | 46 | 50 | -4 | 44 |
8 | Brighton | 28 | 11 | 9 | 8 | 50 | 44 | +6 | 42 |
9 | Wolves | 28 | 12 | 5 | 11 | 42 | 44 | -2 | 41 |
10 | Newcastle | 28 | 12 | 4 | 12 | 59 | 48 | +11 | 40 |
11 | Chelsea | 27 | 11 | 6 | 10 | 47 | 45 | +2 | 39 |
12 | Fulham | 29 | 11 | 5 | 13 | 43 | 44 | -1 | 38 |
13 | Bournemouth | 28 | 9 | 8 | 11 | 41 | 52 | -11 | 35 |
14 | Crystal Palace | 28 | 7 | 8 | 13 | 33 | 48 | -15 | 29 |
15 | Brentford | 29 | 7 | 5 | 17 | 41 | 54 | -13 | 26 |
16 | Everton | 28 | 8 | 7 | 13 | 29 | 39 | -10 | 25 |
17 | Luton | 29 | 5 | 7 | 17 | 42 | 60 | -18 | 22 |
18 | Nott. Forest | 29 | 6 | 7 | 16 | 35 | 51 | -16 | 21 |
19 | Burnley | 29 | 4 | 5 | 20 | 29 | 63 | -34 | 17 |
20 | Sheffield Utd | 28 | 3 | 5 | 20 | 24 | 74 | -50 | 14 |
Athugasemdir