Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 10. maí 2022 14:00
Elvar Geir Magnússon
Strákarnir trúa því að þeir geti unnið City
Carlos Cachada, aðstoðarmaður Bruno Lage.
Carlos Cachada, aðstoðarmaður Bruno Lage.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Liverpool munu halda með Úlfunum annað kvöld þegar Manchester City mætir á Molineaux leikvanginn.

Bruno Lage, stjóri Wolves, er með Covid-19 og aðstoðarmaður hans, Carlos Cachada, sat því fyrir svörum á fréttamannafundi í dag.

„Bruno greindist með veiruna en er ekki með nein einkenni. Í lok dagsins mun hann fara í aðra skimun og mun vonandi vera neikvæður svo hann geti stýrt í leiknum á morgun. Ef hann greinist jákvæður fer hann í aðra skimun á morgun," segir Cachada.

„Hann er í beinu sambandi við okkur allan daginn í gegnum tæknina. Hann var á æfingasvæðinu og horfði á síðasta leik í sjónvarpinu en var í beinu sambandi og það virkaði vel. Hann tók allar ákvarðanir um skiptingar og annað. Fyrir leikinn þá talaði hann við liðið gegnum Zoom og fór yfir hvað hann vildi með glærusýningu. Það sama var gert í hálfleik."

„Manchester City er með toppþjálfara, topplið, toppleikmenn. Þeir eru virkilega góðir í öllum þáttum leiksins en við gerum okkar besta til að trufla þá. Okkar markmið er að vinna Man City. Það verður erfitt en strákarnir trúa á sigur. Þeir hafa sýnt karakter þegar á þarf að halda."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner