Fyrrum landsliðsframherjinn, Ríkharður Daðason er einn af meðlimum landsliðsnefndar og hefur því um nóg að snúast í kringum landsliðið á HM í Rússlandi.
Eitt af verkefnum hans er að veita viðtöl, bæði við íslenska og erlenda fréttamenn.
Eitt af verkefnum hans er að veita viðtöl, bæði við íslenska og erlenda fréttamenn.
„Það er verið að spyrja um alls skonar hluti. Hvernig getum við endurtekið ævintýrið frá því í Frakklandi?, Af hverju ættum við að geta það? Og svo framvegis," sagði Rikki og hélt áfram,
„Síðan er stærð þjóðarinnar mörgum hugleikið og árangurinn sem við höfum náð. Þetta er allt afskaplega skemmtilegt og gaman að taka þátt í þessu."
Hann segir að erlendur fjölmiðlamennirnir beri virðingu fyrir íslenska landsliðinu.
„Það virðast allir vera mjög vel undirbúnir og það virðast því allir vera "on point" að tala um liðið í dag, árangurinn í dag og fyrir tveimur árum. Það hefur ekki komið mikið um þessar óupplýstu spurningar sem var dálítið um fyrir tveimur árum í Frakklandi. Manni líður eins og við séum búin að stimpla okkur almennilega inn og við séum orðin alvöru lið," sagði Rikki.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan, en þar ræðir hann einmitt um sundlaugarbakkann á hótelinu sem bíður þeirra.
Athugasemdir