Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 10. júní 2022 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brighton skellir stórum verðmiða á Cucurella
Marc Cucurella.
Marc Cucurella.
Mynd: Getty Images
Það er mikill áhugi á vinstri bakverðinum Marc Cucurella eftir fínt tímabil hans með Brighton.

Brighton ætlar ekki að missa þennan öfluga leikmann ódýrt og er búið að skella stórum verðmiða á hann.

Samkvæmt TalkSport þá mun leikmaðurinn kosta 50 milljónir punda í sumar.

Eftir að kaupin á Erling Braut Haaland voru staðfest, þá er Manchester City byrjað að vinna í öðrum skotmörkum. Cucurella er á óskalistanum þar sem Oleksandr Zinchenko er mögulega á förum.

Chelsea er líka að fylgjast með honum og er hart barist um þennan hárprúða leikmann.

Brighton borgaði 18 milljónir evra fyrir Cucurella - sem ólst upp hjá Barcelona - í fyrra en gæti stórgrætt á honum í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner