Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 10. júní 2022 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hópurinn tilkynntur á morgun - Getur valið fleiri en 23
Icelandair
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Áætlað var að landsliðshópur kvenna fyrir Evrópumótið yrði tilkynntur í dag en búið er að gera breytingu á því og verður hópurinn tilkynntur á morgun.

Þorsteinn Halldórsson mun þar gefa út landsliðshóp sinn fyrir komandi verkefni: Evrópumótið í Englandi.

Í lokahópnum verða 23 leikmenn en það er ekki útilokað að Steini velji fleiri leikmenn á morgun til þess að koma saman til æfinga á Íslandi.

Aðrar þjóðir hafa valið stærri hópa sem verða svo skornir niður. England valdi til að mynda 28 manna hóp og verða svo fimm leikmenn ekki valdir í lokahópinn.

Það verður að skila 23 manna hóp inn til UEFA fyrir 26. júní næstkomandi. Þá verður hópurinn að vera klár.

Klukkan 13:00 á morgun verður íslenski hópurinn tilkynntur, en verða það 23 leikmenn? Það kemur í ljós.
Athugasemdir
banner
banner
banner