Fylki lagði Fjölni að velli, 1-0, í Lengjudeild kvenna á Würth-vellinum í kvöld.
Helga Guðrún Kristinsdóttir gerði eina mark leiksins á 65. mínútu með glæsilegu skoti fyrir utan teig.
Þegar þrettán mínútur voru eftir fékk Fjölnir nokkur dauðafæri í röð til að jafna leikinn eftir að Tinna Brá Magnúsdóttir, markvörður Fylkis, missti boltann frá sér og náðu svo Fylkiskonur að bjarga fyrir rest.
Lokatölur 1-0 fyrir Fylki sem nær í sín fyrstu stig í sumar og kemur sér upp úr botnsætinu. Liðið er nú með 3 stig á meðan Fjölnir er með 1 stig á botninum.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir