Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 10. júní 2022 13:00
Elvar Geir Magnússon
Marcelo með þrjú tilboð á borðinu
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Marcelo hefur verið hjá Real Madrid síðan 2006 en yfirgefur félagið í sumar þegar samningur hans rennur út.

Vinstri bakvörðurinn er 34 ára og vildi vera áfram á Santiago Bernabeu þar sem fjölskylda hans er mjög ánægð með lífið í spænsku höfuðborginni.

En svo virðist vera sem ævintýri í öðru landi sé í kortunum en Marcelo hefur fengið tilboð frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Katar og Tyrklandi samkvæmt Marca.

Marcelo hefur allan sinn feril hugsað vel um sig en Real Madrid telur að hann geti ekki spilað áfram á sínu getustigi.

Marcelo á 58 landsleiki fyrir Brasilíu á ferilskrá sinni og spilaði 545 leiki fyrir Real Madrid. Hann og Roberto Carlos eru taldir bestu vinstri bakverðir í sögu félagsins.
Athugasemdir
banner
banner