Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. júní 2022 19:34
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikar kvenna: Jasmín Erla skoraði þrennu og skaut Stjörnunni í undanúrslit
Jasmín Erla Ingadóttir gerði þrennu fyrir Stjörnuna
Jasmín Erla Ingadóttir gerði þrennu fyrir Stjörnuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 1 - 4 Stjarnan
0-1 Jasmín Erla Ingadóttir ('5 )
0-2 Gyða Kristín Gunnarsdóttir ('10 )
0-3 Jasmín Erla Ingadóttir ('55 )
1-3 Haley Marie Thomas ('65 )
1-4 Jasmín Erla Ingadóttir ('79 )
Lestu um leikinn

Stjarnan tryggði sér sæti í undanúrslit Mjólkurbikarsins í kvöld með 4-1 sigri á ÍBV á Hásteinsvelli.

Jasmín Erla Ingadóttir tók forystuna fyrir Stjörnuna eftir fimm mínútna leik með skot úr teignum áður en Gyða Kristín Gunnarsdóttir nýtti sér mistök í vörn Eyjaliðsins fimm mínútum síðar og bætti við öðru.

Stjörnukonur gerðu þriðja markið á 55. mínútu og var Jasmín aftur á ferðinni. Hún potaði boltanum í netið eftir að Guðný Geirsdóttir hafði kýlt boltann út í teig.

Haley Marie Thomas minnkaði muninn fyrir ÍBV tíu mínútum síðar áður en Jasmín fullkomnaði þrennu sína á 79. mínútu og skaut Stjörnukonum í undanúrslit bikarsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner