Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 10. júní 2022 10:00
Elvar Geir Magnússon
Simeone kominn á óskalista Arsenal
Giovanni Simeone.
Giovanni Simeone.
Mynd: EPA
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Arsenal hafi áhuga á argentínska framherjanum Giovanni Simeone, leikmanni Hellas Verona.

Simeone er 26 ára kraftmikill sóknarmaður og samkvæmt TuttoMercato hefur Juventus verið að skoða það síðustu daga að gera tilboð í hann.

Spænsk og þýsk félög eru sögð hafa áhuga en nú virðist Arsenal hafa blandað sér í baráttuna.

Simeone er sonur Diego Simeone, stjóra Atletico Madrid, en hann skoraði sautján mörk og átti sex stoðsendingar í 36 leikjum í ítölsku A-deildinni á liðnu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner