Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 10. júlí 2018 14:15
Magnús Már Einarsson
Gummi Ben spáir í leik Frakklands og Belgíu
Gummi Ben.
Gummi Ben.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrri undanúrslitaleikurinn á HM fer fram klukkan 18:00 í kvöld en þar mætast Frakkland og Belgía í beinni útsendingu á RÚV.

Guðmundur Benediktsson hefur lýst leikjum á HM af sinni alkunnu snilld og hann settist í spádómssætið fyrir leikinn í kvöld.

Frakkar fóru síðast í undanúrslit og úrslit á HM árið 2006. Belgar hafa einu sinni áður farið í undanúrslit en það var 1986 þegar þeir töpuðu gegn Argentínu.



Frakkland 3 - 3 Belgía (3-4 í framlengingu)
Ég ætla að spá algjörum klassíker. 3-3 og framlenging þar sem Belgar vinna 4-3. Eden Hazard ætlar að skora sigurmarkið í framlengingunni.

Í venjulegum leiktíma skorar Kevin De Bryne tvö mörk og Romelu Lukaku eitt. Olivier Giroud skorar sín fyrstu tvö mörk í keppninni en hann skorar tvö með skalla. Kylian Mbappe skorar líka eitt mark. Þetta verður trylltur leikur.
Athugasemdir
banner
banner
banner