Glöggir sjónvarpsáhorfendur hafa kannski tekið eftir Neil Rowe, manni sem er alls ekki ólíkur Gareth Southgate landsliðsþjálfara Englands, í kringum útsendingu frá leik Englands og Svíþjóðar um síðustu helgi.
Rowe er í raun og veru flugmaður og mikill fótboltaáhugamaður og hefur gaman að því að vera líkt við Southgate. Hann klæðir sig eins og þjálfarinn vinsæli og vakti mikla athygli í stúkunni á leiknum gegn Svíþjóð.

Í dag skellti Rowe sér svo á rauða torgið í Moskvu og baðaði sig í athyglinni. England mætir Króatíu í borginni annað kvöld, í undanúrslitaleik á HM.
Margir viðstaddir héldu að í raun og veru hafi verið um Southgate að ræða og sat Rowe fyrir á fjölda 'bolamynda'.
Hér að neðan má sjá fleiri myndir frá Rowe á rauða torginu!
Athugasemdir