Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 10. júlí 2019 22:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
3. deild: Kórdrengir á toppinn eftir endurkomusigur gegn KV
Álftanes og Reynir S. með sigra
Magnús Þórir Matthíasson skoraði tvö mörk fyrir Kórdrengi í kvöld.
Magnús Þórir Matthíasson skoraði tvö mörk fyrir Kórdrengi í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrír leikir hófust í klukkan 20:00 í 11. umferð 3. deildar karla. Fyrr í dag sigruðu Vængir Júpíters lið Sindra með fimm mörkum gegn fjórum á Höfn og á Ólafsfirði gerðu KF og Einherji 1-1 jafntefli.

Stórleikur umferðarinnar fór fram á KR-vellinum. Þar tók KV á móti Kórdrengjum.

KV var komið tveimur mörkum yfir eftir tæplega stundarfjórðungsleik en Magnús Þórir Matthíasson jafnaði leikinn með tveimur mörkum á þremur mínútum skömmu seinna.

Staðan var jöfn í hálfleik í þessum toppbaráttuleik. Kórdrengir náðu að skora sigurmarkið og kom það á 69. mínútu. Einar Orri Einarsson, fyrirliði liðsins, skoraði þá og tryggði lið sínu sigurinn.

Í Borgarnesi tóku heimamenn í Skallagrími á móti Reyni frá Sandgerði. Sandgerðingar fóru sáttir heim eftir 2-3 sigur.

Augnablik tók þá á móti Álftanesi á gervigrasinu í Fagralundi. Freymar Örn Ómarsson gerði eina mark leiksins fyrir Álftanes á 50. mínútu.

Kórdrengir eru komnir á toppinn og hafa eins stigs foskot á KV, stigi á eftir þeim koma svo Vængir Júpíters sem hafa svo aftur eins stigs forskot á KF í fjórða sætinu.

Reynir hefur 18 stig í 5. sætinu, Álftanes er með 12 stig í 8. sæti og Augnablik er í 10. sæti með sjö stig. Þá er Skallagrímur í 11. sæti með sex stig.

Skallagrímur 2-3 Reynir S.
0-1 Magnús Magnússon ('15)
0-2 Elvar Ingi Vignisson ('27)
1-2 Markaskorara vantar ('57)
1-3 Theodór Guðni Halldórsson ('70)
2-3 Markaskorara vantar ('82)

Augnablik 0-1 Álftanes
0-1 Freymar Örn Ómarsson ('50)

KV 2-3 Kórdrengir
1-0 Gabríel Hrannar Eyjólfsson ('8)
2-0 Einar Már Þórisson ('14, víti)
2-1 Magnús Þórir Matthíasson ('20
2-2 Magnús Þórir Matthíasson ('23)
2-3 Einar Orri Einarsson ('69)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner