Chelsea mætti í kvöld Bohemians í æfingaleik. Þetta var fyrsti leikur Frank Lampard sem stjóri hjá Chelsea.
Michy Batshuayi kom Chelsea yfir í leiknum og skoraði því fyrsta mark Chelsea undir stjórn Lampard.
Allt virtist stefna í sigur Chelsea en Eric Molloy sem er á reynslu hjá Bohemians jafnaði leikinn á síðustu sekúndum leiksins. Lampard byrjar því á jafntefli í sínum fyrsta leik.

Byrjunarlið Chelsea: Caballero, Sterling, Azpilicueta, Guehi, Kenedy, Drinkwater, Ampadu, Pedro, Gallagher, Palmer, Batshuayi.
Liðið sem hóf seinni hálfleikinn: Cumming, Zappacosta, Chalobah, Zouma, Maatsen, Baker, Bakayoko, Brown, Gilmour, Piazon, Ugbo.
Athugasemdir