„Þetta er það sem þetta snýst um, við gefum nánast tvö mörk en svo sigldum við þessu heim," sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja, eftir sigur Kórdrengja á KV í toppbaráttuslag í 3. deild karla í kvöld.
„Ég var alveg viss um að þetta yrði okkar leikur. Mér fannst þeir aldrei eiga séns í þessum leik. Það var alltof mikið flautað og það hentaði þeim. Mér fannst við vera mikið betri."
Kórdrengir eru í toppsæti deildarinnar en mikil spenna er á toppnum.

„Við erum ekkert að fela það að við höldum að við séum besta liðið í deildinni og taflan sýnir það núna. Ég hef fulla trú á þessum hópi."
„Ég býst ekki við því að bæta við hópinn. Það vantaði aðeins upp á breiddina. Við fengum Axel Andra frá Fylki í gær og hann kom inn á í kvöld. Breiddin á hópnum er góð núna."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir