banner
   mið 10. júlí 2019 16:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gerrard: Ojo hefur allt til að verða frábær með Rangers
Mynd: Getty Images
Rangers vann í gær 0-4 útisigur á St. Joseph's í Gíbraltar í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

Steven Gerrard er stjóri Rangers og var hann gífurlega ánægður með Sheyi Ojo sem félagið fékk frá Liverpool í sumar á láni.

Öll mörk Rangers komu í seinni hálfleik og skoraði Ojo annað mark liðsins á 56. mínútu.

„Ojo hefur allt sem leikmaður og ef hann nær ekki að springa út hjá Rangers er það honum sjálfum að kenna," sagði Gerrard um Ojo eftir leikinn í gær.

„Hann er snöggur, sterkur, kraftmikill og frá mínu sjónarhorni þá veit ég að hann hlýðir taktískum skipunum mínum."

„Hann veit að hann þarf að láta þetta ganga. Hann er ánægður hér og hefur komið sér vel fyrir hér. Stuðningsmenn hafa tekið vel á móti honum og hann verður að byggja ofan á þetta."


Ojo var að spila sinn fyrsta keppnisleik fyrir Rangers en hann hefur fjórum sinnum verið lánaður frá Liverpool fyrir lánssamning sem samið var um í sumar.
Athugasemdir
banner
banner