Gunnar Jarl Jónsson, fyrrum dómari, kallar eftir því að fleiri leikmenn úr neðri deildum karla og kvenna fari í dómgæslu.
Gunnar Jarl var sjálfur leikmaður Leiknis R. áður en hann byrjaði að dæma af krafti árið 2007.
Hann var um árabil besti dómari landsins áður en hann lagði flautuna á hilluna fyrir síðasta tímabil.
Gunnar hefur verið að starfa hjá KSÍ við að efla dómgæslu og hann vill sjá fleiri leikmenn úr neðri deildunum taka sama skref og hann tók á sínum tíma.

Einkamálaauglýsing.
— Gunnar Jarl Jónsson (@gunnar_jarl) July 10, 2019
Af hverju fáum við ekki fleiri leikmenn úr neðri deildum karla og kvenna í dómgæsluna? Skora á konur/karla á aldrinum 17-35 ára að hafa samband. Látum ykkur dæma leik og af stað.
Dómgæslan fær oft ósanngjarna umræðu því við eigum marga frambærilega dómara.
Athugasemdir