Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. júlí 2019 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stjóri Sheffield United framlengir - Stuðningsmaður alla ævi
Mynd: Getty Images
Chris Wilder mun halda áfram starfi sínusem knattspyrnustjóri Sheffield United. Hann er búinn að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við félagið.

Wilder hóf feril sinn sem leikmaður hjá Sheffield United og er hann búinn að vera stuðningsmaður félagsins allt sitt líf.

Hann er búinn að vera stjóri Sheffield United síðustu þrjú árin. Á síðustu leiktíð kom hann Sheffield United upp í ensku úrvalsdeildina. Hann kom liðinu upp um tvær deildir á þremur árum.

Hann var valinn knattspyrnustjóri ársins á Englandi af enska knattspyrnustjórasambandinu og hafði betur í kapphlaupi við Pep Guardiola, Jürgen Klopp og Mauricio Pochettino meðal annarra.

Sheffield United hefur leik í ensku úrvalsdeildinni gegn Bournemouth á útivelli 10. ágúst næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner