Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. júlí 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Tottenham á eftir Ceballos - Liverpool gæti gert tilboð
Mynd: Getty Images
Tottenham er í viðræðum við Real Madrid um möguleg kaup á miðjumanninum Dani Ceballos.

Hinn 22 ára gamli Ceballos sló í gegn þegar Spánn vann EM U21 árs landsliða en hann skoraði tvö mörk og lagði upp tvö á mótinu.

Ceballos vill sjálfur fara á láni og ef hann fer til Tottenham verður það væntanlega niðurstaðan.

Liverpool hefur einnig sýnt Ceballos áhuga og gæti lagt fram 45 milljóna punda tilboð í hann að sögn spænska íþróttablaðsins Marca.

Ceballos á fjögur ár eftir af samningi sínum við Real Madrid en áhugavert verður að sjá hvar hann spilar á komandi tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner