Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 10. júlí 2021 17:58
Victor Pálsson
Courtois með létt skot á leikmann Man Utd: Er hann stórstjarna!?
Stórstjarna eða ekki?
Stórstjarna eða ekki?
Mynd: Getty Images
Thibaut Courtois, markvörður Belgíu og Real Madrid, skaut aðeins á Anthony Martial, framherja Manchester United, í gær.

Courtois og Jan Vertonghen ræddu málin við Pickx og var markmaðurinn beðinn um að nefna stjörnur sem spiluðu ekki á EM alls staðar í sumar.

Vertonghen nefndi síðar Martial sem kom Courtois á óvart - hann virðist ekki vera á því máli að Martial sé í sama flokki og aðrir leikmenn sem voru nefndir.

„Nefndu þrjár stórstjörnur sem voru ekki á þessu EM," var spurning Vertonghen sem Courtois svaraði svo.

„Sergio Ramos... Uuu.. Uuu...," svaraði Courtois sem var í vandræðum með að nefna fleiri leikmenn.

Vertonghen steig þá inn í og nefndi Erling Haaland, Marc-Andre ter Stegen, Virgil van Dijk, Moise Kean, Miralem Pjanic og Anthony Martial.

„Martial!? Er hann stjörnuleikmaður?" sagði Courtois þá sem varð til þess að báðir leikmenn fóru að hlæja.
Athugasemdir
banner
banner
banner