Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 10. júlí 2021 21:05
Victor Pálsson
Davies meiddur og tekur ekki þátt
Mynd: Getty Images
Alphonso Davies, leikmaður Bayern Munchen, spilar ekki með kanadíska landsliðinu í Gullkeppninni í ár.

Þetta staðfesti kanadíska knattspyrnusambandið í gær en Davies er stærsta stjarna liðsins.

Hann meiddist hins vegar á æfingu fyrr í vikunni og er á leið aftur til Bayern þar sem hann reynir að jafna sig.

Það er enn ekki ljóst hversu alvarleg meiðslin eru en Davies missti af leikjum á síðasta tímabili þar sem hann var á sjúkralistanum.

Gullkeppnin byrjar í nótt og lýkur þann 1. ágúst. Kanada hefur leik gegn Martinique og spilar seinna við Haíti og Bandaríkin.
Athugasemdir
banner
banner
banner