Phil Jagielka gæti rifið fram skóna næsta vetur og spilað með Derby County í næst efstu deild Englands.
Jagielka var látinn fara frá Sheffield United eftir síðasta tímabil er liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni.
Jagielka fékk símtal frá fyrrum liðsfélaga sínum Wayne Rooney á dögunum og æfir nú með Derby.
Rooney og Jagielka voru saman í enska landsliðinu en sá síðarnefndi er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Everton.
Jagielka er svo sannarlega kominn á seinni árin í boltanum en hann er 38 ára gamall og spilar sem miðvörður.
Bolton hafði einnig áhuga á Jagielka en útlit er fyrir að hann velji að spila fyrir Rooney sem lék með Manchester United í mörg ár.
Athugasemdir