Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 10. júlí 2021 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Segir að Chiesa sé ekki á förum frá Juventus
Mynd: EPA
Federico Chiesa er þessa stundina að undirbúa sig fyrir úrslitaleik EM með Ítalíu gegn Englandi.

Ítalía vann Spán í undan úrslitum eftir vítaspyrnukeppni en staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Chiesa skoraði mark Ítalíu.

Chiesa skrifaði undir tveggja ára lánssamning við Juventus í fyrra en hann er í eigu Fiorentina.

Sögusagnir fóru á kreik um að hann væri á förum frá Juventus og á leið til Bayern Munchen. Félagsskipta sérfræðingurinn Fabrizio Romano segir á Twitter síðu sinni að það sé ekkert til í þeim sögusögnum.


Athugasemdir
banner
banner
banner