Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 10. júlí 2021 14:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Steingrímssynir framlengja hjá KA
Bræðurnir
Bræðurnir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bræðurnir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn Steingrímssynir hafa framlengt samninga sína við KA til ársins 2023.

Þeir eru uppaldir í Völsungi en Hallgrímur sem er 31 árs hefur leikið með KA síðan hann var 18 ára gamall. Hrannar er 29 ára og hefur verið á mála hjá KA síðan hann var 21. árs.

Hallgrímur er leikjahæsti leikmaður KA frá upphafi en hann hefur leikið 238 leiki í deild og bikar en hann er einnig markahæstur fyrir KA í efstu deild með 31 mark.

Hallgrímur hefur leikið 10 leiki í deildinni á þessari leiktíð og skorað í þeim fimm mörk. Hrannar hefur verið að kjást við meiðsli og hefur aðeins leikið þrjá leiki.


Athugasemdir
banner
banner