Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 10. júlí 2021 22:50
Victor Pálsson
'Umboðsmaðurinn Ferdinand' hafði samband við leikmann Real
Mynd: EPA
Rio Ferdinand er búinn að senda Raphael Varane skilaboð og hvetur leikmanninn til að ganga í raðir Manchester United.

Man Utd reynir að fá Varane í sínar raðir þessa dagana en hann leikur með Real Madrid og er einn besti miðvörður heims að margra mati.

Ferdinand var spurður að því í gær hvort hann ætlaði að heyra í Varane en það er nú þegar búið og gert.

„Ég er nú þegar búinn að því. Umboðsmaðurinn Ferdy," svaraði Ferdinand.

Ferdinand gerði garðinn frægan sem leikmaður Man Utd og er harður stuðningsmaður félagsins í dag.

Hann ræddi nánar um Varane í þættinum Vibe with Five og segir Frakkann vera með sigurviljann sem enska félagið þarfnast.
Athugasemdir
banner