Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. júlí 2021 20:40
Victor Pálsson
Verður betri ef hann fær sjöuna á Old Trafford
Mynd: EPA
Jadon Sancho verður betri leikmaður fyrir Manchester United ef hann fær treyjunúmerið sjö á Old Trafford.

Þetta segir þjálfarinn Louis Lancaster sem þekkir til Sancho en þeir unnu saman hjá Watford.

Sancho er að ganga í raðir Man Utd frá Dortmund en hann er þessa stundina með enska landsliðinu á EM.

Lancaster telur að pressan sem fylgir númerinu henti Sancho en margar goðsagnir hafa klæðst sjöunni hjá félaginu.

„Ég held að það myndi ekki hafa neikvæð áhrif. Ég held að hann yrði betri leikmaður vegna pressunnar sem fylgir," sagði Lancaster.

„Sumir leikmenn missa hausinn en aðrir verða tíu prósent betri undir pressu. Ég segi þeim að láta hann fá treyjuna."
Athugasemdir
banner
banner
banner