Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. júlí 2021 16:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vialli næstum því skilinn eftir heima
Mynd: Getty Images
Ítalía mætir Englandi í úrslitaleik EM á morgun.

Ítalska landsliðið sigraði Spán í undan úrslitum á þriðjudaginn eftir vítaspyrnukeppni.

Liðið yfirgaf æfingarsvæðið á Ítalíu í morgun með rútu en flugu síðan til London þar sem úrslitaleikurinn fer fram á morgun.

Gianluca Vialli átti farsælan feril sem leikmaður fyrir Sampdoria, Juventus og Chelsea. Hann er í þjálfarateymi ítalska landsliðsins.

Sky Sports birti kostulegt myndband þar sem allir virtust vera búnir að koma sér fyrir og rútan rétt að leggja af stað þegar uppgötvaðist að það vantaði Vialli. Myndbandið er hægt að sjá hér sjón er sögu ríkari.

Athugasemdir
banner
banner
banner