Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 10. júlí 2021 21:39
Victor Pálsson
Villarreal fékk höfnun frá Bournemouth
Mynd: Getty Images
Bournemouth hefur hafnað tilboði Villarreal í sóknarmanninn Arnaut Danjuma.

Þetta kemur fram á Sky Sports í dag en Evrópudeildarmeistararnir hafa áhuga á þessum skemmtilega leikmanni.

Villarreal vann Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á síðustu leiktíð og er á leið í Meistaradeildina.

Danjuma er 24 ára gamall og skoraði 17 mörk í 37 leikjum fyrir Bournemouth á síðustu leiktíð.

Villarreal bauð 13 milljónir punda í sóknarmanninn en Bournemouth ákvað að hafna því tilboði.

Danjuma á að baki tvo landsleiki fyrir Holland og hefur skorað eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner