Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 10. ágúst 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Myndband: Töframaður kynnti Cazorla með töfrabragði
Mynd: Twitter
Santi Cazorla var í gær kynntur formlega sem nýr leikmaður Villarreal á Spáni.

Eftir mikla þrautagöngu vegna meiðsla undanfarin tvö ár þá byrjaði Cazorla á að æfa með Villarreal í sumar þegar samningur hans hjá Arsenal rann út.

Hann hefur nú skrifað undir samning við félagið og í gær var hann kynntur til leiks fyrir framan 4500 stuðningsmenn á El Madrigal leikvanginum.

Óhætt er að segja að Villarreal hafi farið ótroðnar slóðir í kynningunni en töframaður kynnti Cazorla til leiks með töfrabragði.

Sjón er sögu ríkari en myndband má sjá hér að neðan!

Athugasemdir
banner
banner