fös 10. ágúst 2018 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu það helsta úr sigri Þórs/KA gegn Linfield
Óheppnar að vinna ekki stærra
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þór/KA lagði Linfield að velli í undankeppni Meistaradeildarinnar síðasta þriðjudag.

Akureyringar áttu góðan leik og hefðu hæglega getað unnið stærra. Stelpurnar mæta Wexford Youths í næstu umferð í dag og Hollandsmeisturum Ajax í þeirri síðustu.

Hafi Þór/KA betur gegn Wexham verður leikurinn gegn Ajax að öllum líkindum úrslitaleikur um sæti í 32-liða úrslitum.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá helstu atvik leiksins. Yfirburðir Þórs/KA voru augljósir og hreint út sagt ótrúlegt að boltinn hafi einungis farið í netið tvisvar sinnum.


Athugasemdir
banner
banner