Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 10. ágúst 2020 09:39
Magnús Már Einarsson
Sancho fór með Dortmund til Sviss - Ólíklegt að hann fari til Man Utd
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho ferðaðist í dag til Sviss með Borussia Dortmund en liðið verður þar í æfingaferð næstu dagana.

Sancho hefur verið sterklega orðaður við Manchester United í sumar en engir samningar hafa náðst.

Dortmund hafði áður gefið í skyn að félagið vildi að framtíð Sancho væri ljós fyrir æfingaferðina til Sviss.

Manchester United hefur neitað að greiða 108 milljóna punda verðmiðann á Sancho.

Þessa dagana virðist því ólíklegt að það verði af kaupunum í sumar en United er farið að skoða aðra kosti, til að mynda að fá Kingsley Coman á láni frá Bayern Munchen.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner