Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 10. september 2018 18:00
Magnús Már Einarsson
Fyrstu 25 sekúndurnar í leik Englands og Sviss sýndar í svarthvítu
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Fyrstu 25 sekúndurnar í landsleik Englands og Sviss annað kvöld verða sýndar í svarthvítu í sjónvarpinu í Englandi.

Þetta er gert til að fagna 25 ára afmæli samtakanna Kick it out.

Kick it out samtökin vinna gegn kynþáttafordómum og hafa unnið öflugt starf í Englandi í áraraðir.

Vináttuleikur Englands og Sviss fer fram á heimavelli Leicester annað kvöld en sjónvarpsáhorfendur heima í stofu sjá byrjun leiksins í svarthvítu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner