fös 10. september 2021 20:00
Victor Pálsson
De Bruyne gæti spilað á morgun
Mynd: Getty Images
Það er möguleiki á að Kevin de Bruyne snúi aftur í byrjunarllið Manchester City um helgina í ensku úrvalsdeildinni.

De Bruyne hefur verið að jafna sig af meiðslum sem hann hlaut í sumar og lék aðeins 11 mínútur í opnunarleiknum gegn Tottenham.

Belginn hefur þá misst af síðustu tveimur leikjum Man City gegn Tottenham og Norwich sem unnust báðir.

De Bruyne var svo ekki með belgíska landsliðinu í undankeppni HM en hann hefur æft stíft með liði Englandsmeistarana síðustu daga.

Samkvæmt enskum miðlum gæti De Bruyne snúið til baka að alvöru um helgina er Man City mætir Leicester.

Pep Guardiola, stjóri liðsins, mun þó bíða með ákvörðun þar til á síðustu stundu.
Athugasemdir
banner