Íslendingalið Lecce gerði markalaust jafntefli í Serie B í kvöld í leik gegn Benevento á útivelli.
Tveir landsliðsmenn voru í leikmannahóp Lecce eða þeir Brynjar Ingi Bjarnason og Þórir Jóhann Helgason.
Báðir þessir leikmenn voru með íslenska landsliðinu í leikjum gegn Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi á dögunum.
Þórir kom við sögu í þessum leik en hann kom inná sem varamaður á 79. mínútu í seinni hálfleik.
Brynjar fékk engar mínútur að þessu sinni er Lecce náði í sitt annað stig í sumar. Liðið hefur spilað þrjá leiki.
Athugasemdir